Númerakerfi án vélar

Númerakerfi stýrir biðröðinni. Netmiði gerir það stafrænt: sláðu inn síma, fáðu SMS, fylgstu með — án númeravélar og án stórrar innleiðingar.

Hvað er númerakerfi?

Númerakerfi (einnig kallað biðraðakerfi eða þjónustukerfi) gefur viðskiptavini númer, sýnir honum stöðuna og kallar hann þegar kemur að honum. Á Íslandi þekkja flestir þetta sem númeravél á vegg eða stór kerfi eins og Qmatic.

Stafrænt númerakerfi gerir slíkt hið sama í símanum. Viðskiptavinurinn slær inn símanúmerið (eða skannar QR), fær SMS með númeri og slóð og fylgist með röðinni. Starfsfólk kallar næsta úr tölvu eða spjaldtölvu. Skjár í móttöku sýnir „núna kallað“.

Númeravél eða SMS?

Númeravél prentar pappír, bila, þarf viðhald og festir fólk við vegginn. Með Netmiða slær viðskiptavinurinn inn símanúmer og fær SMS — enginn pappír, ekkert app. QR-skilti er valkostur fyrir þá sem vilja skanna.

Hann getur sest, farið í bílinn eða skoðað verslunina og samt séð hvenær kemur að honum. Þú opnar skjáham á sjónvarpi eða spjaldtölvu og stjórnar röðinni úr stjórnborði.

Qmatic og önnur stór kerfi

Qmatic er þekktasta númerakerfið á Íslandi, oft selt með vélum og innleiðingu til apóteka, stofnana og keðja. EdicoVisit og svipuð kerfi leysa sama verkefni fyrir stærri rekstur.

Ef þú ert með eina til nokkrar raðir og vilt byrja á þessum degi er slík innleiðing of þung. Netmiði er stafrænt númerakerfi fyrir þann hóp: engin vél, enginn kassi, 14 daga prófun. Þú getur borið það saman við Qmatic Mobile Ticket — nema hér er enginn vélbúnaður skilyrði.

Fyrir hvaða fyrirtæki?

Dekkjaverkstæði og bílaþjónustur, rakara- og snyrtistofur, apótek, þjónustuborð, móttökur og verslanir með ráðgjöf. Allir sem eru með biðröð og vilja skýrara flæði án þess að kaupa númeravél.

Algengar spurningar um númerakerfi

01Hvað er númerakerfi?

Númerakerfi stýrir biðröð: viðskiptavinur fær númer, sér hvar hann er og er kallaður þegar röðin kemur að honum. Netmiði gerir þetta með SMS — sláðu inn síma, fáðu númer og slóð. QR er valkostur. Án númeravélar.

02Er Netmiði það sama og Qmatic?

Nei. Qmatic er stórt þjónustukerfi, oft með vélum og innleiðingu, notað t.d. í apótekum og stofnunum. Netmiði er einfaldara: SMS með númeri, stjórnborð og skjáhamur — án stórs samnings.

03Þarf ég númeravél?

Nei. Viðskiptavinurinn slær inn símanúmerið (eða skannar QR), fær SMS með númeri og slóð og fylgist með í símanum. Starfsfólk kallar næsta úr stjórnborði. Skjár í móttöku sýnir „núna kallað“.

04Fyrir hvaða fyrirtæki hentar stafrænt númerakerfi?

Dekkjaverkstæði, bílaþjónustur, rakara- og snyrtistofur, apótek, þjónustuborð og móttökur — allir sem eru með biðröð og vilja losna við pappírsnúmer.

Prófaðu númerakerfið frítt

Stofnaðu aðgang á tveimur mínútum eða fiktaðu fyrst í leiksvæðinu á forsíðunni.