Persónuverndarstefna
Síðast uppfært 21. ágúst 2026
Þessi stefna lýsir því hvernig Netmiði vinnur persónuupplýsingar þegar þú heimsækir vefinn, stofnar aðgang eða notar biðraðaþjónustuna. Við vinnum gögn í samræmi við persónuverndarlög nr. 90/2018 og GDPR.
Ábyrgðaraðili
Ábyrgðaraðili vinnslunnar er Novamedia ehf., kennitala 540606-2260. Hægt er að hafa samband á hallo@novamedia.is eða á novamedia.is. Netmiði er vara í rekstri Novamedia ehf.
Þegar fyrirtæki notar Netmiða til að taka á móti viðskiptavinum er það fyrirtæki ábyrgðaraðili gagnvart eigin viðskiptavinum. Netmiði er þá vinnsluaðili og vinnur gögnin samkvæmt leiðbeiningum viðskiptavinarins.
Hvaða gögn við söfnum
Aðgangur og áskrift: nafn, netfang, lykilorðshash, nafn fyrirtækis, stillingar og greiðslustaða.
Notkun kerfisins: raðir, miðar, atburðir, tölfræði og aðgerðalogs sem nauðsynleg eru til að reka þjónustuna.
Gögn viðskiptavina fyrirtækja: nafn, símanúmer, bílnúmer og athugasemd ef þau eru skráð við innritun. Þessi gögn eru aðeins sýnileg því fyrirtæki sem rekur röðina.
Tæknileg gögn: IP-tala, vafragerð og öryggisatvik, t.d. til að takmarka misnotkun innskráningar.
Tilgangur og lagagrundvöllur
Við vinnum gögn til að veita þjónustuna, stofna og viðhalda aðgangi, senda staðfestingar- og öryggispóst, svara demo-beiðnum og bæta kerfið.
Lagagrundvöllur er einkum samningur (notkun þjónustunnar), lögmætir hagsmunir (öryggi, svikavarnir og vöruþróun) og samþykki þar sem það á við, t.d. valfrjálsar tilkynningar.
Varðveisla
Aðgangs- og áskriftargögn eru varðveitt á meðan aðgangur er virkur og í hæfilegan tíma eftir uppsögn vegna bókhalds og réttindaverndar.
Miðar og tölfræði eru varðveitt hjá viðkomandi fyrirtæki þannig að hægt sé að sýna biðtíma og yfirlit. Fyrirtæki getur óskað eftir eyðingu gagna sinna með því að hafa samband.
Miðlun og hýsing
Við deilum gögnum ekki með þriðja aðila til markaðssetningar. Gögn geta verið hýst hjá rekstraraðilum sem við notum til að reka þjónustuna, t.d. hýsingu, gagnagrunni og tölvupóstsendingu, og aðeins að því marki sem nauðsynlegt er.
Starfsfólk Netmiða hefur aðeins aðgang að gögnum þegar það þarf til að veita þjónustu eða leysa úr vandamáli.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá aðgang að persónuupplýsingum þínum, fá þær leiðréttar, óska eftir eyðingu, takmarka vinnslu, andmæla vinnslu og fá gögn afhent á færanlegu sniði, eftir því sem lög leyfa.
Ef þú ert viðskiptavinur fyrirtækis sem notar Netmiða skaltu fyrst hafa samband við það fyrirtæki. Þú getur einnig sent erindi á hallo@novamedia.is eða til Persónuverndar.
Vafrakökur
Við notum nauðsynlegar vafrakökur fyrir innskráningu, tungumál og þema. Við setjum ekki auglýsingakökur frá þriðja aðila á vefinn.